Fréttir

true

Forystusauðurinn Jarl farinn í annan leiðangur

Í lok síðasta mánaðar urðu þau Sigríður Ævarsdóttir og Benedikt Líndal þess vör að forystusauður þeirra, sem ber heitið Jarl, hafi horfið burt af landareign þeirra að Gufuá í Borgarfirði. Jarl var síðan fangaður í hringtorginu í Borgarnesi rúmum sólarhring síðar og fluttur aftur til síns heima eftir mikið menningarsjokk og lífshættulega för. Nú hefur…Lesa meira

true

Farþegaskip á Arnarstapa

Lúxus farþegaskipið The World liggur nú fyrir ankerum utan við höfnina á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Skipið er 200 metra langt, 30 metrar að breidd og er það alls 12 dekkhæðir. The World var smíðað árið 2001 og gert út frá Fort Lauderdale í Bandaríkjunum. Skipið er 43.118 brúttótonn að stærð og í því eru innréttaðar…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir Faxaflóa á morgun

Veðurstofan hefur sent út gula viðvörun sem tekur gildi í fyrramálið á Faxaflóa, Suðurlandi og fyrir miðhálendið. Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við suðaustan hvassviðri og talsverðri rigningu eða stormi við Faxaflóa. Staðbundinn vindur getur farið yfir 25 m/s, sérstaklega við Hafnarfjall og á Kjalarnesi. Veðurstofan bendir á að ekkert útivistarveður verði á…Lesa meira

true

Verk Önnu Þorvaldsdóttur frumflutt á BBC Proms

Tónverk eftir Borgnesinginn Önnu Þorvaldsdóttur var frumflutt fimmtudaginn 11. ágúst á BBC Proms. Verkið ber heitið Anchora og var sérstaklega pantað fyrir hátíðina sem er ein stærsta og virtasta tónlistarhátíð heims. Eva Ollikainen stjórnaði verkinu sem flutt var í Royal Albert Hall en hún er aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Anna segir verkið fanga hugmyndina um frumorku…Lesa meira

true

DalaAuður – áætlun um árangursríkar aðgerðir til aukinnar velsældar

Boðað til íbúafundar í Dölum næstkomandi þriðjudag Eitt af fyrstu skrefum okkar í verkefnisstjórn brotthættra byggða í Dölum, var að efna til íbúaþings þar sem íbúar komu með innlegg til að nýta við þá vinnu sem framundan er. Íbúaþingið fór fram í lok mars og var vel mætt og jákvæð og góð þátttaka á þinginu.…Lesa meira

true

Síðasti dagur sýningar Hennar voru spor

Sumarsýningin Hennar voru spor, í Safnahúsi Borgarfjarðar, rennur brátt sitt skeið á enda og er lokadagur hennar föstudagurinn 19. ágúst næstkomandi. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að á sýningunni gefi að líta muni úr safnkosti Byggðarsafnsins er snúa að handverki með megin áherslu á útsaum og textíl. Hugmyndin með sýningunni er að setja fram fallega…Lesa meira

true

Tvær stofnanir vakta nú hvalveiðar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur sett reglugerð um eftirlit við hvalveiðar hér við land. Reglugerðin hefur þegar tekið gildi og er eftirlitið hafið samkvæmt henni. Matvælastofnun er nú falið að hafa reglubundið eftirlit til að farið sé að lögum um velferð dýra við hvalveiðar. Fiskistofa mun sjá um framkvæmd eftirlitsins samkvæmt fyrirliggjandi samstarfssamningi milli stofnananna tveggja.…Lesa meira

true

Skaginn 3X gerir stóran samning við BlueWild

Skaginn 3X hefur samið um að útvega háþróaða vinnslulínu um borð í nýjan, byltingarkenndan togara fyrir norska útgerðarfélagið Bluewild. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að togarinn er hannaður af Ulstein Design & Solutions AS og smíðaður af Westcon skipasmíðastöðinni í Noregi. Hönnun togarans byggir á því sem framleiðendurnir hafa kallað Ecofive hugmyndafræði sem felst…Lesa meira

true

Skallagrímur með stórsigur á Ísbirninum

Skallagrímur og Ísbjörninn mættust á föstudaginn í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Skallagrímsvelli. Það var sannkallað markaregn í blíðunni í Borgarnesi því Skallagrímsmenn skoruðu fimm mörk í fyrri hálfleik. Arthúr Bjarni Magnason skoraði tvö mörk og þeir Viktor Ingi Jakobsson, Elís Dofri Gylfason og Helgi Rafn Bergþórsson skoruðu…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir Völsungi

Völsungur og ÍA mættust í mikilvægum leik í 2. deild kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á PCC vellinum á Húsavík. Sylvía Lind Henrysdóttir kom Völsungi yfir í leiknum á sjöundu mínútu en tíu mínútum síðar jafnaði Samira Suleman leikinn fyrir ÍA. Aðeins tveimur mínútum eftir jöfnunarmark ÍA skoraði Berta María Björnsdóttir annað…Lesa meira