Anna Þorvaldsdóttir og Eva Ollikainen eftir frumflutning á verkinu Anchora í Royal Albert Hall, en verkið var sérstaklega pantað fyrir tónlistarhátíðina BBC Proms. Ljósm. FB.

Verk Önnu Þorvaldsdóttur frumflutt á BBC Proms

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Tónverk eftir Borgnesinginn Önnu Þorvaldsdóttur var frumflutt fimmtudaginn 11. ágúst á BBC Proms. Verkið ber heitið Anchora og var sérstaklega pantað fyrir hátíðina sem er ein stærsta og virtasta tónlistarhátíð heims. Eva Ollikainen stjórnaði verkinu sem flutt var í Royal Albert Hall en hún er aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Anna segir verkið fanga hugmyndina um frumorku og andstæð öfl. Anna er eitt fremsta tónskáld Íslendinga en hún býr í Surrey í Bretlandi ásamt eiginmanni sínum. Hún ferðast þó mikið vegna vinnu sinnar og fylgir verkum sínum eftir um allan heim en Anna hefur m.a. áður samið verk fyrir Berlínar Fílharmóníuna og New York Fílharmóníuna.",
  "innerBlocks": []
}