{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Veðurstofan hefur sent út gula viðvörun sem tekur gildi í fyrramálið á Faxaflóa, Suðurlandi og fyrir miðhálendið. Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við suðaustan hvassviðri og talsverðri rigningu eða stormi við Faxaflóa. Staðbundinn vindur getur farið yfir 25 m/s, sérstaklega við Hafnarfjall og á Kjalarnesi. Veðurstofan bendir á að ekkert útivistarveður verði á morgun og varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni.",
"innerBlocks": []
}