
Hvalveiðibátur á leið inn í Hvalfjörð, Akranes í bakgrunni. Ljósm. Stjórnarráðið.
Tvær stofnanir vakta nú hvalveiðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur sett reglugerð um eftirlit við hvalveiðar hér við land. Reglugerðin hefur þegar tekið gildi og er eftirlitið hafið samkvæmt henni. Matvælastofnun er nú falið að hafa reglubundið eftirlit til að farið sé að lögum um velferð dýra við hvalveiðar. Fiskistofa mun sjá um framkvæmd eftirlitsins samkvæmt fyrirliggjandi samstarfssamningi milli stofnananna tveggja. Fiskistofa mun m.a. sjá um eftirlitsferðir við veiðar, myndbandsupptökur veiðiaðferða og skráningu þeirra. Veiðieftirlitsmenn munu verða um borð í veiðiferðum og verður öllum gögnum komið til eftirlitsdýralæknis í lok hverrar athugunar. Fiskistofa hefur einnig eftirlit með því að þau skilyrði sem fram koma í veiðileyfi varðandi veiðibúnað og veiðar séu uppfyllt.\r\n\r\n„Það er fagnaðarefni að þessar lykilstofnanir skuli vera í samstarfi um eftirlitið. Þar er sérfræðiþekkinguna að finna og gögnin sem safnast munu geta skorið úr um það hvort að framkvæmd hvalveiða sé lögum samkvæmt,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í tilkynningu til fjölmiðla.",
"innerBlocks": []
}