
Frá sýningunni Hennar voru spor. Ljósm. borgarbyggd.is
Síðasti dagur sýningar Hennar voru spor
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sumarsýningin Hennar voru spor, í Safnahúsi Borgarfjarðar, rennur brátt sitt skeið á enda og er lokadagur hennar föstudagurinn 19. ágúst næstkomandi. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að á sýningunni gefi að líta muni úr safnkosti Byggðarsafnsins er snúa að handverki með megin áherslu á útsaum og textíl. Hugmyndin með sýningunni er að setja fram fallega og vandaða muni og um leið varpa ljósi á sögu handverksfólks héraðsins sem stendur að baki verkunum.\r\n\r\nSýningarstjóri er Katrín Jóhannesdóttir textílkennari við Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Af þessu tilefni verður Katrín á staðnum á lokadeginum milli kl. 17 og 18 og segir frá sýningunni og verkum hennar. Vinningshafi í útsaumsmiðagetrauninni verður opinberaður en í verðlaun er útsaumssett frá Ömmu mús handavinnuhúsi.\r\n\r\nÍ tilkynningu segir að Borgarbyggð hvetji sem flesta til að koma við og njóta þessarar fallegu sýningar í Safnahúsinu og þiggja léttar veitingar á lokadegi sýningarinnar.",
"innerBlocks": []
}