Skaginn 3X mun framleiða háþróaða vinnslulínu um borð í nýjan, byltingarkenndan togara fyrir norska útgerðarfélagið Bluewild.
Skaginn 3X gerir stóran samning við BlueWild
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skaginn 3X hefur samið um að útvega háþróaða vinnslulínu um borð í nýjan, byltingarkenndan togara fyrir norska útgerðarfélagið Bluewild. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að togarinn er hannaður af Ulstein Design & Solutions AS og smíðaður af Westcon skipasmíðastöðinni í Noregi. Hönnun togarans byggir á því sem framleiðendurnir hafa kallað Ecofive hugmyndafræði sem felst í sjálfbærni, hagkvæmni og gæðum. Ný skrúfutækni, ný meðhöndlun á trollum, vistvæn dæling á aflanum og nýstárleg vinnslutækni mun þannig gjörbylta framlegð og vistspori togarans.\r\n\r\nTímamótasamningur\r\n\r\nHeildarverðmæti samningsins er rúmlega einn milljarður íslenskra króna. „Samningurinn markar tímamót fyrir okkur,“ segir Ragnar A. Guðmundsson, yfirmaður sölumála hjá Skaganum 3X fyrir Skandinavíu og Evrópu. Ragnar hefur leitt þetta verkefni fyrir hönd Skagans 3X. „Við höfum unnið náið með Bluewild teyminu síðastliðin tvö ár. Ótal fundir og tilraunir skiluðu þessum árangri og við höfum þróað nýja og spennandi kerfislausn sem samrýmist virkilega vel stefnu þeirra,“ segir Ragnar.\r\n\r\nNýsköpun tilnefnd til verðlauna\r\n\r\nSjálfbærni er kjarninn í Ecofive nálguninni sem Bluewild og samstarfsaðilar þeirra hafa þróað. Hún er hugsuð sem leið til að framleiða vörur í hæsta gæðaflokki með sem minnstum orkukostnaði. Verkefnið er tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna Nor-Fishing Foundation 2022. „Það er ótrúlegt tækifæri að vera valinn til að afhenda lausn í nýsköpunarverkefni eins og Ecofive. Kerfislausn okkar fellur ótrúlega vel að kröfum viðskiptavinarins um sjálfbærar veiðar, hámarks nýtingu og aukið verðmæti bæði afurða og aukaafurða,“ segir Ragnar.\r\n\r\nNýjar leiðir til sjálfbærni\r\n\r\nÞegar aflinn mun koma um borð í nýja skipið er hann fluttur beint í vatnsfyllta birgðatanka sem eru fyrir neðan sjólínu. Þar er hann geymdur lifandi áður en hann er fluttur í verksmiðjuna. Aflinn er færður á efra verksmiðjudekkið með yfirþrýstingslosun sem kemur í veg fyrir hið dæmigerða tjón sem getur orðið við notkun annars konar dælingar. Vinnslukerfi Skagans 3X tekur þar við og mun vinna fiskinn í flök og bita. Einnig verður heildstæð rækjulína um borð sem mun vinna soðna lausfrysta rækju sem og frysta iðnaðarrækju til frekari vinnslu í landi. „Við leggjum áherslu á gæði og hámarks afurðanýtingu,“ útskýrir Ragnar. „Þetta þýðir að hver og einn fiskur fær toppmeðhöndlun í öllu ferlinu, allt frá lifandi fiski til frystra afurða. Auk þess er kerfið hannað til að nýta allar aukaafurðir til hin ýtrasta til að hámarka verðmæti þeirra.“\r\n\r\nSamvinna er lykillinn að árangri\r\n\r\nSkipið og öll kerfi þess eru hönnuð og smíðuð af teymi sérfræðinga frá Westcon skipasmíðastöðinni, Ulstein Design & Solutions AS, CFlow Systems, PTG og nú Skaganum 3X. „Við erum stolt af því að viðskiptavinurinn hefur valið okkur með í þetta verkefni og afar stolt af því að vera hluti af þessum hópi,“ segir Ragnar. „Reynsla okkar af íslenskum og alþjóðlegum fiskiðnaði hefur gert okkur kleift að byggja upp teymi á heimsmælikvarða. Okkar teymi leggur ítarlega vinnsluþekkingu, nýsköpunarhugsun og tæknilega sérfræðiþekkingu til þessa verkefnis.“\r\n\r\nUm Skagann 3X\r\n\r\nSkaginn3X er fyrirtæki sem hefur vaxið upp í sterku samstarfi við íslenskan sjávarútveg og er nýstárlegur hátækniframleiðandi á kæli-, frysti- og vinnslukerfum fyrir alþjóðlegan matvælaiðnað og í raun alþjóðlegur leiðtogi í uppsjávarvinnslukerfum. Systurfyrirtæki þess, Baader Ísland er innflytjandi, framleiðandi og þjónustuaðili fyrir Baader, Trio og Seac fiskvinnsluvélar. Öll fyrirtækin eru nú undir einu þaki á Íslandi og að fullu í eigu Baader sem er alþjóðlegur leiðtogi í þróun og framleiðslu fiskvinnslutækja. „Sameiginleg staðsetning og stjórnun á Íslandi hefur það að markmiði að hraða samstarfi við atvinnugreinina með framúrskarandi þjónustu og nýsköpun að leiðarljósi sem mun nýtast sjávarútvegi á Íslandi og alþjóðlega,“ segir í tilkynningu frá Skaganum 3X.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_55444\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-55444 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Skaginn-3X-gerir-storan-samning-vid-BlueWild_2-600x481.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"481\" /> BlueWild teymið. Frá vinstri: Frank R. Myklebust, COO BlueWild, Helge Kittilsen, CCO BlueWild, Ragnar A. Guðmundsson frá Skaganum 3X, Tore Roaldsnes CEO BlueWild, og Gunnar Hessen verkefnastjóri BlueWild. Ljósm. aðsend.[/caption]",
  "innerBlocks": []
Skaginn 3X gerir stóran samning við BlueWild - Skessuhorn