Forystusauðurinn Jarl kannar nýjar slóðir en ekki er vitað hvert hann fór í þetta skiptið.

Forystusauðurinn Jarl farinn í annan leiðangur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í lok síðasta mánaðar urðu þau Sigríður Ævarsdóttir og Benedikt Líndal þess vör að forystusauður þeirra, sem ber heitið Jarl, hafi horfið burt af landareign þeirra að Gufuá í Borgarfirði. Jarl var síðan fangaður í hringtorginu í Borgarnesi rúmum sólarhring síðar og fluttur aftur til síns heima eftir mikið menningarsjokk og lífshættulega för.\r\n\r\nNú hefur Jarl farið aftur á stjá en ekki er vitað hvort hann hafi ákveðið að skoða aðra þéttbýlisstaði héraðsins eða lagt för sína aftur til Borgarness. Sigga og Benni biðja vegfarendur á bifreiðum, bommsum eða öðrum fararskjótum að hafa augu opin á ferðum sínum og hafa samband við þau símleiðis ef til hans sést.\r\n\r\nSigga: 8931793\r\nBenni: 8636895",
  "innerBlocks": []
}
Forystusauðurinn Jarl farinn í annan leiðangur - Skessuhorn