
The World liggur fyrir ankerum út af Arnarstapa. Ljósm. af.
Farþegaskip á Arnarstapa
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lúxus farþegaskipið The World liggur nú fyrir ankerum utan við höfnina á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Skipið er 200 metra langt, 30 metrar að breidd og er það alls 12 dekkhæðir. The World var smíðað árið 2001 og gert út frá Fort Lauderdale í Bandaríkjunum. Skipið er 43.118 brúttótonn að stærð og í því eru innréttaðar 106 íbúðir fyrir farþega, auk 19 stúdíóíbúða. Farþegar voru ferjaðir í land á Arnarstapa með litlum zodiak bátum og farið með þá í skoðunarferðir um Snæfellsnesið. Áhöfnin notaði einnig tækifæri til að koma í land.\r\n\r\nAð sögn Guðmundar Más Ívarssonar hafnarvarðar á Arnarstapa er þetta í annað skipti sem farþegaskip kemur til Arnarstapa í sumar. „Þetta skip er það langstærsta sem komið hefur hingað,“ segir Guðmundur og bætir við að nú þegar hafi eitt farþegaskip bókað komu sína næsta sumar á Arnarstapa.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_55465\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-55465 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Farthegaskip-a-Arnarstapa_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Farþegar voru ferjaðir í land en hér má sjá áhöfn skipsins sem notaði tækifærið til að rölta um og skoða Arnarstapa.[/caption]",
"innerBlocks": []
}