Lífið er ljúft. Ljósm. úr safni Skessuhorn/ Steina Matt

DalaAuður – áætlun um árangursríkar aðgerðir til aukinnar velsældar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<strong>Boðað til íbúafundar í Dölum næstkomandi þriðjudag</strong>\r\n\r\nEitt af fyrstu skrefum okkar í verkefnisstjórn brotthættra byggða í Dölum, var að efna til íbúaþings þar sem íbúar komu með innlegg til að nýta við þá vinnu sem framundan er. Íbúaþingið fór fram í lok mars og var vel mætt og jákvæð og góð þátttaka á þinginu. Í framhaldi af því voru teknar saman niðurstöður þingsins og unnið upp úr þeim tillaga að verkefnisáætlun, þar sem sett eru fram markmið fyrir næstu ár eða til ársins 2025.\r\n\r\nÞriðjudaginn 23. ágúst nk. kl 18.00, verður haldinn íbúafundur í Dalabúð, þar sem verkefnisáætlun verkefnisstjórnar verður kynnt, ásamt áherslum og tímarömmum verkefnanna framundan. Á íbúafundinum gefst kostur á að ræða áætlunina og koma með athugasemdir eða ábendingar og jafnvel leggja til aðra nálgun á þeim verkefnum sem við höfum listað upp.\r\n\r\nÞað er mikilvægt fyrir okkur að þið, ágætu íbúar, sjáið ykkur fært að koma og taka þátt í þessum fundi, en með því móti þá fáum við í verkefnastjórninni orku til áframhaldandi vinnu, að uppbyggilegum verkefnum.\r\n\r\nEitt af því sem þátttaka í brothættum byggðum veitir okkur, er fjármagn til frumkvæðissjóðs. Það er fjármagn sem okkur íbúum stendur til boða til að vinna að verkefnum sem falla að meginmarkmiðum þeim sem við erum að kynna á fundinum. Það geta allir búið til verkefni og sótt um en verkefnisstjórn fer yfir umsóknir og úthlutar til verkefnanna. Þessi sjóður verður starfandi til ársins 2025 og árlega verður boðið uppá að sækja um í hann.\r\n\r\nFyrsta úthlutun verður í haust og er það von okkar að sá fjöldi hugmynda sem fram kom á íbúaþinginu, muni að einhverju leyti komast í framkvæmd af okkur íbúum, því það er eitt af hlutverkum verkefnisins - að skapa jarðveg fyrir okkur heimamenn til að koma okkar hugmyndum í verk, ein eða saman með öðrum.\r\n\r\nDalaAuður var það nafn sem var valið á verkefnið í lok íbúaþingsins síðastliðið vor og því er það svo að héðan í frá munum við ekki tala um brothætta byggð, heldur DalaAuðinn og byggð í sókn.\r\n\r\nHlökkum til að sjá ykkur; Þorgrímur og Bjarnheiður, fulltrúar íbúa í verkefnisstjórn DalaAuðs.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
DalaAuður - áætlun um árangursríkar aðgerðir til aukinnar velsældar - Skessuhorn