Fréttir

true

Kári kominn í sjötta sætið

Knattspyrnufélagið Kári tók á móti Elliða í 3. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og vann sigur með minnsta mun, 1-0. Það var Fylkir Jóhannsson sem skoraði sigurmark Kára í byrjun seinni hálfleiks og þar við sat. Sjöundi sigurleikur Kára í sumar og er liðið í sjötta sæti deildarinnar með 23 stig. Mikil spenna er…Lesa meira

true

Víkingur Ó með tap á móti ÍR

ÍR og Víkingur Ólafsvík áttust við í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór viðureignin fram í Breiðholtinu. Víkingur komst yfir á sjöundu mínútu leiksins með marki frá Luis Romero Jorge og þannig var staðan í hálfleik. Jorgen Petterson jafnaði leikinn fyrir ÍR á 58. mínútu og það var síðan Bragi Karl Bjarkason…Lesa meira

true

Frumvarp um rafrænar skuldaviðurkenningar í Samráðsgátt

Með breytingum sem lagðar eru til í frumvarpsdrögum um rafrænar skuldaviðurkenningar verður hægt að gefa út, undirrita og þinglýsa lánaskjölum vegna fasteignakaupa og bifreiðakaupa alfarið á rafrænu formi. Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur lagt fram frumvarp þess efnis í Samráðsgátt stjórnvalda en þjóðhagslegur ávinningur af rafrænum þinglýsingum er að lágmarki metinn 1,2 – 1,7 milljarðar króna.…Lesa meira

true

Taphrina Skagamanna heldur áfram

KA og ÍA mættust í 17. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og fór leikurinn fram á Greifavellinum á Akureyri. Leikurinn fyrsta hálftímann var nokkuð fjörugur þar sem bæði lið fengu nokkur færi en heimamenn í KA þó líklegri til að skora fyrsta markið. Eftir rúman hálftíma leik misstu Skagamenn Hlyn Sævar Jónsson…Lesa meira

true

Stefán Gísli Íslandsmeistari í Skeet

Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet fór fram á skotvelli Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um helgina. Undanþága fékkst hjá Umhverfisráðherra til að geta haldið mótið á svæðinu, þar sem starfsleyfisumsókn félagsins hefur ekki verið afgreidd hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar. Mótið stóð yfir í tvo daga og lauk svo með úrslitakeppni. Í karlaflokki varð Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi…Lesa meira

true

Stefna á 33 þúsund tonna landeldi á laxi

Um helgina var það tilkynnt að stjórn Landeldis hf. hafi ráðið Eggert Þór Kristófersson fyrrum forstjóra Festis, sem nýjan forstjóra fyrirtækisins. Eggert Þór tekur við af Halldóri Ólafi Halldórssyni, stjórnarformanni Landeldis hf., sem sinnt hefur starfi framkvæmdastjóra samhliða stjórnarformennsku. Laxeldismarkaðurinn telur um þrjár milljónir tonna en undir 1% þess magns hefur fram að þessu verið…Lesa meira

true

Síðasti heimaleikur Reynis í sumar

Reynir Hellissandi, sem spilar í A riðli 4. deildar í knattspyrnu, tók á móti Kríu í síðasta heimaleik sumarsins á Ólafsvíkurvelli föstudaginn 12. ágúst. Frábær umgjörð var fyrir leikinn en allur ágóði af miðasölu rann óskertur til Birnu Kristmundsdóttur en hún háir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Birna er ung móðir ættuð úr Grundarfirði og…Lesa meira

true

Nýtt listaverk afhjúpað hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Á stéttinni framan við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði er nú búið að koma fyrir glæsilegu listaverki. Verkið er skírskotun í undirstöður samfélaga á Snæfellsnesi; sjávarútveg og landbúnað. Sjávarútvegur er og hefur verið megin undirstaða samfélaga á Nesinu og á öldutoppunum við fiskinn, ganga kindur en á Jeratúni, þar sem skólinn stendur, voru alltaf kindur á…Lesa meira

true

Mathias Wilson nýr Norðurlandameistari í eldsmíði

Norðurlandameistaramótinu í eldsmíði lauk á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi nú síðdegis með úrslitum og verðlaunaafhendingu. Keppt var í þremur flokkum á mótinu; byrjenda, sveina og meistara, alls 15 keppendur. Fimm þjóðir; Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk sendu fulltrúa sína til keppni í þessari einni elstu iðngrein sem til er. Byrjendaflokkur keppti á föstudag,…Lesa meira

true

Fótbrotnaði á göngu við Grundarfoss

Síðdegis í gær hrasaði ferðamaður, sem var á göngu við Grundarfoss í Grundarfirði, og fótbrotnaði illa. Þannig hagaði til að sjúkrabílar frá Ólafsvík og Grundarfirði voru báðir að koma úr sjúkraflutningi og fóru áhafnir þeirra á vettvang, en læknir var í öðrum bílnum sem hlúð gat að hinum slasaða á vettvangi. Þá voru björgunarsveitarmenn frá…Lesa meira