
Starfsmenn FSN og listamennirnir stilltu sér upp við verkið þegar það var komið á sinn stað. Ljósm. tfk.
Nýtt listaverk afhjúpað hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á stéttinni framan við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði er nú búið að koma fyrir glæsilegu listaverki. Verkið er skírskotun í undirstöður samfélaga á Snæfellsnesi; sjávarútveg og landbúnað. Sjávarútvegur er og hefur verið megin undirstaða samfélaga á Nesinu og á öldutoppunum við fiskinn, ganga kindur en á Jeratúni, þar sem skólinn stendur, voru alltaf kindur á beit á sumrin. Verkið var unnið af Olena Sheptytiska og Mykola Kravets sem eru úkraínskir listamenn sem búsettir eru í Grundarfirði. Þau hafa unnið við skúlptúragerð og skreytingar í áratug en hægt er að skoða verk þeirra á vefsíðunni <a href=\"https://dyvyna.com.ua\">https://dyvyna.com.ua</a> en þar er margt skemmtilegt að skoða.\r\n\r\nVerkið á vafalaust eftir að vekja mikla athygli vegfarenda enda setur það skemmtilegan svip hvar það stendur við framhlið skólans.",
"innerBlocks": []
}