{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðdegis í gær hrasaði ferðamaður, sem var á göngu við Grundarfoss í Grundarfirði, og fótbrotnaði illa. Þannig hagaði til að sjúkrabílar frá Ólafsvík og Grundarfirði voru báðir að koma úr sjúkraflutningi og fóru áhafnir þeirra á vettvang, en læknir var í öðrum bílnum sem hlúð gat að hinum slasaða á vettvangi. Þá voru björgunarsveitarmenn frá Klakki í Grundarfirði einnig kallaðir á staðinn þar sem bera þurfti sjúkrabörurnar tæplega kílómetra leið niður að slóða sem þar liggur. Læknir mat það svo að réttast væri að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar. Var þyrlunni flogið vestur og lenti hún á bryggjunni í Grundarfirði um klukkan 19:30 og flutti hinn slasaða undir læknishendur í Reykjavík.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-55409\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Fotbrotnadi-a-gongu-vid-Grundarfoss_2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}