Mathias Wilson nýr Norðurlandameistari í eldsmíði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Norðurlandameistaramótinu í eldsmíði lauk á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi nú síðdegis með úrslitum og verðlaunaafhendingu. Keppt var í þremur flokkum á mótinu; byrjenda, sveina og meistara, alls 15 keppendur. Fimm þjóðir; Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk sendu fulltrúa sína til keppni í þessari einni elstu iðngrein sem til er. Byrjendaflokkur keppti á föstudag, í sveinaflokki var keppt í gær en keppni í meistaraflokki fór fram í dag og lauk um nónbil. Ankerissmíð var þema keppninnar í ár.\r\n\r\nÍ byrjendaflokki varð Sören Hammer frá Danmörku þriðji, Nestori Widenoja frá Finnlandi annar en Svíinn Magnús Nilson bar sigur úr býtum. Í sveinaflokki varð Emil Lindqvist Svíþjóð þriðji, Daninn Kasper Reinholdt annar, en sigurvegari varð Finninn Sami Niinilampi.\r\n\r\nMest spenna var fyrir úrslitum í meistaraflokki. Beate Stormo frá Kristnesi í Eyjafirði keppti fyrir hönd Íslands, ein kvenna í keppninni. Hún var ríkjandi Norðurlandameistari og hafði því titil að verja. Smíði hennar fór þó ekki eins og hún hafði vonað, en hún hreppti engu að síður þriðja sætið í keppninni. Í öðru sæti varð Mikael Wunderlich frá Noregi. Nýr Norðurlandameistari í eldsmíði er Svíinn Mathias Wilson.",
  "innerBlocks": []
}
Mathias Wilson nýr Norðurlandameistari í eldsmíði - Skessuhorn