Fyrsta kynslóð laxa Landeldis hf. í sjótanki við Laxabraut í Þorlákshöfn. Ljósm. aðsend.

Stefna á 33 þúsund tonna landeldi á laxi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um helgina var það tilkynnt að stjórn Landeldis hf. hafi ráðið Eggert Þór Kristófersson fyrrum forstjóra Festis, sem nýjan forstjóra fyrirtækisins. Eggert Þór tekur við af Halldóri Ólafi Halldórssyni, stjórnarformanni Landeldis hf., sem sinnt hefur starfi framkvæmdastjóra samhliða stjórnarformennsku.\r\n\r\nLaxeldismarkaðurinn telur um þrjár milljónir tonna en undir 1% þess magns hefur fram að þessu verið alið í kerjum á landi. Engu að síður hefur verð fyrir eldislax sem alinn er upp í landi verið allt að tvöfalt hærra en fyrir lax sem alinn er í sjókvíum. Umhverfissjónarmið ráða þeirri verðlagningu.\r\n\r\n„Allar helstu spár styðja að laxaframleiðsla nái ekki að halda í við mikla eftirspurn eftir laxi og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir Landeldi að byggja upp starfsemi sem mun verða mikilvæg útflutningsgrein á komandi áratug,“ segir í kynningu. Fyrirtækið Landeldi hf. var stofnað árið 2017. Sveitarfélagið Ölfus hefur stutt við félagið frá upphafi og aðstæður í Ölfusi er einkar hagstæðar fyrir laxeldi á landi. Félagið stefnir á að vaxa jafnt og þétt í 33.500 tonna ársframleiðslu eftir sex ár. Félagið rekur seiðaeldisstöð í Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn á samtals yfir 33 ha svæði og hefur í dag öll tilskilin leyfi til að ala lax á landi. Félagið hefur borað eftir um 2.000 l/sek af jarðsjó og tekið fjóra sjótanka í notkun og verða þeir orðnir 14 talsins um næstu áramót. Lífmassi um næstu áramót er áætlaður um 500 tonn. Félagið er nú með um 450 þúsund laxa í áframeldi og um 1,6 milljón í seiðaeldi. 25 manns vinna hjá félaginu og um 50 starfsmenn hjá undirverktökum. „Landeldi leggur metnað sinn í nýtingu úrgangs til áburðarframleiðslu og hefur þess efnis nýlega skrifað undir viljayfirlýsingu við Bændasamtök Íslands og kaupsamning á tæknibúnaði frá Blue Ocean Technology. Stoðir hf., Framherji ehf. og Fylla ehf. eru stærstu hluthafar Landeldis hf. ásamt frumkvöðlum,“ segir í kynningu á fyrirtækinu.",
  "innerBlocks": []
}
Stefna á 33 þúsund tonna landeldi á laxi - Skessuhorn