
Stefán Gísli og María Rós, Íslandsmeistarar 2022. Ljósm. gkg
Stefán Gísli Íslandsmeistari í Skeet
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet fór fram á skotvelli Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um helgina. Undanþága fékkst hjá Umhverfisráðherra til að geta haldið mótið á svæðinu, þar sem starfsleyfisumsókn félagsins hefur ekki verið afgreidd hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar. Mótið stóð yfir í tvo daga og lauk svo með úrslitakeppni.\r\n\r\nÍ karlaflokki varð Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness Íslandsmeistari eftir spennandi viðureign við Hákon Þ. Svavarsson nýkrýndan Norðurlandameistara. Þeir enduðu á bráðabana þar sem Stefán skaut einni dúfu meira en Hákon. Í þriðja sæti varð Guðlaugur Bragi Magnússon úr Skotfélagi Akureyrar.\r\n\r\nÍ kvennaflokki varð Íslandsmeistari María Rós Arnfinnsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar, Helga Jóhannsdóttir úr sama félagi varð önnur, en hún jafnaði eigið Íslandsmet í undankeppninni. Í þriðja sæti hafnaði svo Dagný Huld Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur. Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar varð Íslandsmeistari unglinga. Í liðakeppninni sigraði sveit Skotíþróttafélags Suðurlands, en sveitir Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar hlutu annað og þriðja sætið. Nánar á úrslitasíðunni, www.sti.is",
"innerBlocks": []
}