Fréttir

true

Gera upp bíl fyrir æfingaakstur

Kristinn Óli Sigurðsson á Akranesi, alltaf kallaður Kiddi, er nýorðinn 15 ára og vinnur nú að því ásamt pabba sínum að standsetja bíl sem hann ætlar að nota sem æfingaakstursbíl þegar hann verður 16 ára í ágúst á næsta ári. Bíllinn er af gerðinni Corvette, árgerð 1980 og er fallega appelsínugulur á litinn. Kiddi á…Lesa meira

true

Opið Íþróttamót Dreyra fór fram í blíðviðri

Síðastliðna helgi fór fram opið Íþróttamót hjá hestamannafélaginu Dreyra. Alls komu 140 skráningar á mótið sem fór fram á blíðviðrisdegi. Mótið gekk vel að sögn mótsnefndar og gengu keppendur sáttir frá vel heppnuðu móti. Mótsnefnd vill koma á framfæri þökkum fyrir frábært mót auk sérstakra þakka til styrktaraðila.  Helstu styrktaraðilar mótsins eru Íslandsbanki, Landsbankinn, Sjóvá,…Lesa meira

true

Færir ráðuneyti sitt tímabundið í Snæfellsbæ á morgun

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun nú í vikunni færa skrifstofu sína tímabundið í Snæfellsbæ og vinna þaðan. Áslaug Arna ákvað síðastliðið haust, þegar hún tók við þessu nýja ráðuneyti, að það yrði vinnustaður án staðsetningar og með því að færa sig sjálf um set vill hún sýna fram á hversu gerlegt það…Lesa meira

true

Opna í september líkamsræktarstöð í Brákarey

Þau Bryndís Birgisdóttir og Ingi Gunnar Kristbergsson eru um þessar mundir að undirbúa opnun Metabolic stöðvar að Brákarbraut 18 í Borgarnesi, í húsnæði sem Björgunarsveitin Brák seldi nýverið. Ingi Gunnar er frá Hofsstöðum í Stafholtstungum og Bryndís frá Kópavogi en þau kynntust við nám í viðskiptafræði á Bifröst. Þau eru því bæði viðskiptafræðingar en Bryndís…Lesa meira

true

Hvasst og rignir í dag

Víðáttumikil lægð er nú staðsett suðvestur af landinu sem stjórnar veðrinu næstu daga. Veðurstofan spáir í dag suðaustan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands sem og á miðhálendinu. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi fyrir Suðurland, Faxaflóa og miðhálendi nú frá morgni og framyfir hádegi. Í dag þykknar svo upp í…Lesa meira

true

Fjallgöngur á framandi slóðum reyna oft meira á andlegu hliðina en þá líkamlegu

Rætt við Skagamanninn Bjarna Einar Gunnarsson „Að stunda fjallgöngur hefur gefið mér afskaplega mikið. Það er áskorunin, félagsskapurinn, ósnortin náttúra Íslands og síðast en ekki síst að kynnast fólki; lifnaðarháttum, mannlífi og fegurð í fjarlægum löndum þar sem ég hef gengið. Ég var í Tanzaníu og fór þar á topp Kilimanjaro fjallsins og svo gekk…Lesa meira

true

LbhÍ og samstarfsskólar hljóta myndarlegan styrk

Landbúnaðarháskóli Íslands og sjö aðrir samstarfsháskólar í Evrópu hlutu nýverið styrk frá Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins að upphæð 6,83 milljónir evrur, eða um 960 milljónir íslenskra króna, til samstarfsnetsins UNIGreen (The Green European University). Hinir háskólarnir eru Háskólinn í Almeria á Spáni sem stýrir verkefninu, Landbúnaðarháskólinn í Plovdiv í Búlgaríu, Tækniháskólinn í Coimbra í Portúgal, Paris…Lesa meira

true

Bæta þarf aðstöðu í Akraneshöfn til sjósetningar

Þriðjudagskvöldið 9. ágúst barst björgunarsveitum á sunnanverðu Vesturlandi forgangsútkall þar sem maður hafði farið í sjóinn við Langasand á Akranesi. Björgunaraðilar brugðust hratt við og sjósettu báta sína í höfnina á Akranesi. Þar var að falla frá og sást þá glöggt hve aðstaða til sjósetningu á bátum er léleg. Erfiðlega gekk að sjósetja þar sem…Lesa meira

true

Friðrún heiðruð á Reykhóladögum

Á Reykhóladögum um síðustu helgi, sem jafnframt var afmælishátíð í ýmsum skilningi, var íbúi ársins í Reykhólahreppi heiðraður. Það var að þessu sinni Friðrún Gestsdóttir. Friðrún hefur unnið að alúð fyrir sveitarfélagið í mörg ár. Hún hefur sett mark sitt á allt skólastarf með sínu einstaka jákvæða viðmóti og dillandi hlátri. Hún hefur verið til…Lesa meira

true

Töluvert næturfrost var liðna nótt

Næturfrost mælast óvenju snemma þetta sumarið, en allt að 4,3 gráðu frost mældist síðustu nótt, mest á Þingvöllum. Einnig mældist einnar gráðu frost í Reykjavík. Á Vesturlandi mældist frost víða í Borgarfirði, m.a. í Húsafelli mældist 1,7 gráður, í Stafholtsey mældist 1,6 gráðu frost og á Hvanneyri fór frostið í -0,7 gráður samkvæmt mælingum Veðurstofunnar.…Lesa meira