
Hrímuð jörð. Myndina tók Guðrún Sigurjónsdóttur á Glitstöðum í Norðurárdal í morgun.
Töluvert næturfrost var liðna nótt
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Næturfrost mælast óvenju snemma þetta sumarið, en allt að 4,3 gráðu frost mældist síðustu nótt, mest á Þingvöllum. Einnig mældist einnar gráðu frost í Reykjavík. Á Vesturlandi mældist frost víða í Borgarfirði, m.a. í Húsafelli mældist 1,7 gráður, í Stafholtsey mældist 1,6 gráðu frost og á Hvanneyri fór frostið í -0,7 gráður samkvæmt mælingum Veðurstofunnar. Einnig þurfti að skafa af bílrúðum í Norðurárdal og sjá mátti hrím á gróðri og nýbundnum heyrúllum frá því um helgina. Þess má einnig geta að 4. ágúst síðastliðinn var einnig næturfrost í uppsveitum Borgarfjarðar og sá á kartöflugrösum eftir það. Frostið er því fremur snemma á ferðinni.",
"innerBlocks": []
}