
Friðrún Gestsdóttir með viðurkenninguna. Ljósm. jöe.
Friðrún heiðruð á Reykhóladögum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á Reykhóladögum um síðustu helgi, sem jafnframt var afmælishátíð í ýmsum skilningi, var íbúi ársins í Reykhólahreppi heiðraður. Það var að þessu sinni Friðrún Gestsdóttir. Friðrún hefur unnið að alúð fyrir sveitarfélagið í mörg ár. Hún hefur sett mark sitt á allt skólastarf með sínu einstaka jákvæða viðmóti og dillandi hlátri. Hún hefur verið til staðar fyrir börn skólans sem hafa fundið hjá henni stuðning og hlýju. Friðrún hefur barist með skjólstæðingum sínum fyrir bættri aðstöðu og gefið sig 150% í starfið í vinnu sína með börnum með fötlun. Friðrún er jafnframt einstaklega jákvæð og bjartsýn og hefur líka gefið fullorðna fólkinu gleði í hjarta með því að senda hlýtt bros og falleg orð.\r\n\r\n<em>Sjá nánar um Reykhólahátíð í Skessuhorni sem kemur út í fyrramálið.</em>",
"innerBlocks": []
}