{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Víðáttumikil lægð er nú staðsett suðvestur af landinu sem stjórnar veðrinu næstu daga. Veðurstofan spáir í dag suðaustan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands sem og á miðhálendinu. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi fyrir Suðurland, Faxaflóa og miðhálendi nú frá morgni og framyfir hádegi. Í dag þykknar svo upp í öðrum landshlutum þar sem einnig mun rigna en hvassviðrið verður ekki eins mikið og hér suðvestanlands.\r\n\r\nÞess má geta að ekkert útivistaveður verður á þeim slóðum sem viðvörunin gildir og því er lokað fyrir gönguferðir að gosstöðvunum í Meradölum.",
"innerBlocks": []
}