
Bryndís og Ingi Gunnar.
Opna í september líkamsræktarstöð í Brákarey
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þau Bryndís Birgisdóttir og Ingi Gunnar Kristbergsson eru um þessar mundir að undirbúa opnun Metabolic stöðvar að Brákarbraut 18 í Borgarnesi, í húsnæði sem Björgunarsveitin Brák seldi nýverið. Ingi Gunnar er frá Hofsstöðum í Stafholtstungum og Bryndís frá Kópavogi en þau kynntust við nám í viðskiptafræði á Bifröst. Þau eru því bæði viðskiptafræðingar en Bryndís er einnig einkaþjálfari og hóf að kenna Metabolic í Borgarnesi síðastliðinn vetur. Þau segja það lengi hafa verið draum þeirra að opna stöð í Borgarnesi, draum sem nú verður að veruleika.\r\n\r\nBryndís og Ingi segja hugmyndina að stöðinni hafa kviknað fyrir mörgum árum en ekki hafi orðið af henni fyrr en nú vegna flutninga og heimsfaraldurs. ,,Það er mjög fyndið að segja frá því en þegar ég var að þjálfa á Bifröst árin 2016 til 2019 var ég alltaf með þessa hugmynd um að opna stöð í Borgarnesi. Svo breyttust tímarnir og við fluttum burt um tíma en erum komin til baka núna. Okkur langaði mjög mikið að koma aftur en við erum mjög spennt fyrir þessu samfélagi og erum með gott tengslanet hér. Við fórum eiginlega bara strax að leita að húsnæði þegar við fluttum aftur í Borgarfjörðinn fyrr á þessu ári. Nú erum við komin með þetta flotta húsnæði sem er í heildina 400 fermetrar en salurinn sjálfur er 200 fermetrar. Svo erum við að vinna í því að útbúa móttöku, búningsklefa og hér verður barnahorn líka. Þetta verður allur pakkinn,“ segja þau í sameiningu.\r\n\r\n \r\n\r\n<em>Sjá má viðtalið í heild sinni í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}