ér er verið að sjósetja björgunarbát frá Brák í Borgarnesi í smábátarennunni við Akraneshöfn sl. þriðjudagskvöld. Ljósm. mm

Bæta þarf aðstöðu í Akraneshöfn til sjósetningar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þriðjudagskvöldið 9. ágúst barst björgunarsveitum á sunnanverðu Vesturlandi forgangsútkall þar sem maður hafði farið í sjóinn við Langasand á Akranesi. Björgunaraðilar brugðust hratt við og sjósettu báta sína í höfnina á Akranesi. Þar var að falla frá og sást þá glöggt hve aðstaða til sjósetningu á bátum er léleg. Erfiðlega gekk að sjósetja þar sem bakka þurfti með bátana niður langan ramp og sleppa þeim í stórgrýti.\r\n\r\nÁsgeir Örn Kristinsson, meðlimur í Björgunarfélagi Akraness, vakti máls á því á bæjarráðsfundi Akraneskaupstaðar 28. júlí síðastliðinn að öryggismálum við höfnina á Akranesi og Grundartanga væri verulega ábótavant. Það mál fór svo inn á borð umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar sem fundaði um það mánudaginn 15. ágúst. Dagarnir þar á milli reyndust hins vegar örlagaríkir því einn maður lét lífið í sjónum við Akranes. Taka skal fram að betri aðstæður hefðu að líkindum engu breytt hvernig fór í því slysi.\r\n\r\n<strong>Útfæra nýjan ramp</strong>\r\n\r\nGuðmundur Ingþór Guðjónsson er formaður skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar. „Við ræddum öryggismálin á okkar fundi og fengum Ragnar Baldvin Sæmundsson á fundinn til okkar því hann er stjórnarmaður Akraneskaupstaðar í Faxaflóahöfnum. Við fórum svo yfir það í sameiningu hvernig aðstaðan er í dag, fyrir t.d. Björgunarfélagið, að koma bátum niður af því að rampurinn sem er þarna í dag er ekki nægilega góður. Nú er þetta mál í fullri vinnslu og við erum að skoða hvaða möguleikar og kostir eru í stöðunni.“ Þá segir Guðmundur Ingþór Akraneskaupstað vilja gera allt til þess að aðstaðan niðri við höfn sé sem best fyrir alla aðila. „Það sorglega er að það þurfti svona slys til að við vöknum, þó svo að þetta hafi allt gengið vel með aðgerðirnar núna. Þetta vekur mann til umhugsunar um að það sé hægt að hafa hlutina betri.“ Aðspurður um hvort einhver tímarammi sé á verkinu segir Guðmundur Ingþór að vinna eigi þetta verkefni hratt og örugglega og að Faxaflóahafnir séu þegar farnar að skoða hvernig best sé að útfæra nýjan ramp.\r\n\r\nRagnar Baldvin Sæmundsson er fulltrúi Akraneskaupstaðar í Faxaflóahöfnum. „Faxaflóahafnir eru búnar að vera að skoða í töluverðan tíma öryggismál við Akraneshöfn, sér í lagi við sjósetningu smærri báta í kringum rampinn sem nú er. Hugmyndin var að betrumbæta þann ramp sem er fyrir og breikka hann. En núna er verið að skoða að setja upp annan ramp sem hentar betur fyrir sjósetningu.“ Þá segir Ragnar að ekki yrði þá hróflað við rampinum sem fyrir er og myndi hann nýtast þegar unnið er í bátum o.þ.h. „Nýr rampur kæmi þá úti við Akraborgarbryggjuna og hann yrði eingöngu til að setja niður og taka upp báta.“\r\n\r\n<strong>Aukið sjósport</strong>\r\n\r\nÁ Akranesi hefur verið mikil aukning í sjósporti síðustu ár og því er nauðsynlegt að bæta aðstöðuna með það í huga. „Nú er að aukast að menn eru með alls konar báta sem verið er að setja niður og taka upp og þá þarf aðstaðan að vera í takti við það. Faxaflóahafnir leggja mjög mikið upp úr öryggi og þetta er stór þáttur í því að það sé til staðar aðstaða, til að setja niður og taka upp, sem hægt er að komast í,“ segir Ragnar. Hann bætir við að mikilvægt sé að læra af því þegar slys eiga sér stað. „Við sjáum í svona aðgerðum, þar sem er háfjara að þá er mjög erfitt fyrir björgunaraðila að koma niður sínum tækjum og misjafnt eftir því hvort er flóð eða fjara. Við erum búin að vera í þessu samtali við björgunarfélagið og Faxaflóahafnir og höfum haft öryggismálin á höfninni í skoðun í nokkurn tíma.“",
  "innerBlocks": []
}
Bæta þarf aðstöðu í Akraneshöfn til sjósetningar - Skessuhorn