Úslit í fimmgangi V5, 2. Flokki. Frá hægri: Linda Hrönn Reynisdóttir á Tangó frá Reyrhaga, Magnús Karl Gylfason á Birtingu frá Birkihlíð, Guðrún Fjeldsted á Polka frá Ósi og Ólafur Guðmundsson á Eldi frá Borgarnesi.

Opið Íþróttamót Dreyra fór fram í blíðviðri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðna helgi fór fram opið Íþróttamót hjá hestamannafélaginu Dreyra. Alls komu 140 skráningar á mótið sem fór fram á blíðviðrisdegi. Mótið gekk vel að sögn mótsnefndar og gengu keppendur sáttir frá vel heppnuðu móti. Mótsnefnd vill koma á framfæri þökkum fyrir frábært mót auk sérstakra þakka til styrktaraðila.  Helstu styrktaraðilar mótsins eru Íslandsbanki, Landsbankinn, Sjóvá, Kallabakarí, Fasteignasalan Hákot, Hrossaræktunarbúið Skipaskagi, Búvelaverkstæðið Skipanesi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir.\r\n\r\nMótið var stórt en fjöldi keppnisgreina stóð keppendum til boða. Keppt var í 1.flokki Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Tölt T4, Gæðingaskeið og Flugskeið 100m. 2. Flokkur Fimmgangur F2, Fjórgangur V5, Tölt T4 og Tölt T7, barnaflokkur Fjórgangur V2, Fjórgangur V5 og Tölt T7. Unglingaflokkur Fimmgangur F2, Fjórgangur V2, Tölt T3 og Tölt T7, Ungmennaflokkur Fimmgangur F2, Fjórgangur V2, Tölt T3 og Tölt T4 og Gæðingaskeið PP1.\r\n\r\n \r\n\r\n[gallery ids=\"55535,55536\"]\r\n\r\n \r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Opið Íþróttamót Dreyra fór fram í blíðviðri - Skessuhorn