Kiddi er hér við hlið bílsins. Myndin var tekin áður en ráðist var í viðgerðir á bílnum

Gera upp bíl fyrir æfingaakstur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kristinn Óli Sigurðsson á Akranesi, alltaf kallaður Kiddi, er nýorðinn 15 ára og vinnur nú að því ásamt pabba sínum að standsetja bíl sem hann ætlar að nota sem æfingaakstursbíl þegar hann verður 16 ára í ágúst á næsta ári. Bíllinn er af gerðinni Corvette, árgerð 1980 og er fallega appelsínugulur á litinn. Kiddi á bílinn með pabba sínum, Sigurði Má Sigmarssyni, en þeir fengu hann keyptan norðan úr landi. Feðgarnir höfðu haft augastað á bílnum áður en hann kom á sölu. „Já, sko við vorum alltaf svolítið að spá í þessu, að kaupa svona gamlan bíl og gera hann upp. Við áttum fyrst fjórhjól sem við seldum af því við vissum af þessum bíl þegar hann var ekki kominn á sölu. Þannig við seldum strax fjórhjólið og fórum svo og keyptum þennan.“ Bíllinn var gangfær þegar feðgarnir festu á honum kaup en einhver olíuleki kom svo í ljós. „Jú, jú hann var gangfær en svo var olíuleki og við létum tékka á því og þá var eitthvað að vélinni og við þurftum eiginlega bara að kaupa nýja.“ Og hver er staðan á bílnum núna? „Sko, bíllinn er nýkominn aftur hérna inn í skúr. Við erum búnir að skipta um allan framendann, allar fóðringar og svona og nú er verið að gera upp vélina. Við erum eiginlega bara að bíða eftir því að vélin komi og þá er bíllinn kominn í gang,“ segir Kiddi í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nKiddi nýtur þess að verja tíma með pabba sínum í skúrnum. „Yfirleitt þegar pabbi hefur tíma þá förum við hingað út,“ segir Kiddi þegar blaðamaður spyr hvort verkefnið taki mikinn tíma. Kiddi segir pabba sinn alveg vita hvað eigi að gera en þeir fái þó handleiðslu frá öðrum lærðari. „Já við fáum leiðbeiningar frá Bílveri. Við vorum með bílinn uppi í Bílveri og vorum að gera hann upp þar og vélin er þar líka.“\r\n\r\nViðtalið við Kidda í heild sinni og myndir af bílnum má sjá í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.",
  "innerBlocks": []
}
Gera upp bíl fyrir æfingaakstur - Skessuhorn