Færir ráðuneyti sitt tímabundið í Snæfellsbæ á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun nú í vikunni færa skrifstofu sína tímabundið í Snæfellsbæ og vinna þaðan. Áslaug Arna ákvað síðastliðið haust, þegar hún tók við þessu nýja ráðuneyti, að það yrði vinnustaður án staðsetningar og með því að færa sig sjálf um set vill hún sýna fram á hversu gerlegt það er. Þá mun Áslaug Arna hafa opna viðtalstíma á skrifstofu sinni þar sem allir áhugasamir eru velkomnir í stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Loks verða fyrirtækjaheimsóknir einnig hluti af dagskrá ráðherra.\r\n\r\n,,Hugmyndin kviknaði þegar ég var að hugsa hvernig ráðuneyti sem væri búið til árið 2022 myndi starfa. Með þessu kynnist ég enn betur starfsemi sem tengist ráðuneytinu um allt land og fæ tækifæri til að prófa að starfa annars staðar en í Reykjavík,“ segir Áslaug Arna.",
"innerBlocks": []
}
Færir ráðuneyti sitt tímabundið í Snæfellsbæ á morgun - Skessuhorn