Fréttir

true

Skallagrímsstrákar stóðu sig vel í Eyjum

Skallagrímur sendi tvö lið á Orkumótið í Vestmannaeyjum sem fram fór um síðustu helgi. Voru þar 16 strákar sem spiluðu fyrir sitt félag og stóðu bæði liðin sig ótrúlega vel. Skallagrímur-2 endaði á því að vinna Stórhöfðabikarinn, en félagið allt hlaut sömuleiðis flottustu verðlaun mótsins; Háttvísisverðlaun KSÍ.Lesa meira

true

Yfir 30 nýstúdentar hljóta Menntaverðlaun Háskóla Íslands

Þrjátíu og einn nemandi úr framhaldsskólum víða um land tók við Menntaverðlaunum Háskóla Íslands við útskriftir úr skólunum í vor. Verðlaunin voru nú veitt í áttunda sinn. Markmiðið með Menntaverðlaunum HÍ er að verðlauna framhaldsskólanema sem hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs auk þess að hafa sýnt eftirtektarverða frammistöðu á sviði lista eða…Lesa meira

true

Föst leikatriði höfuðverkur Skallagríms gegn Árborg

Skallagrímur tók á móti Árborg í 4. deild karla í knattspyrnu síðastliðinn föstudag. Skallagrímur náði frábærum úrslitum í umferðinni á undan er liðið gjörsigraði RB, 1-10. Árborg hafði náð í jafntefli gegn Tindastól í umferðinni á undan og var með 12 stig í fimmta sæti deildarinnar á meðan Skallagrímur var í því áttunda með 6…Lesa meira

true

Erfið ferð Reynismanna á Stokkseyri

Reynir frá Hellissandi lék gegn Stokkseyri í B-riðli fimmtu deildar á sunnudaginn. Fyrir leik liðanna var Reynir með 5 stig í sjöunda sæti deildarinnar á meðan Stokkseyri var með þrjú stig í áttunda sæti og því mikið í húfi í þessum leik. Liðsmenn Reynis byrjuðu leikinn af miklum krafti og Kristófer Máni Atlason kom Reyni…Lesa meira

true

Tvö rauð spjöld í jafntefli Kára og Magna

Kári og Magni frá Grenivík mættust í síðasta leik 9. umferðar þriðju deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn í Akraneshöllinni. Káramenn voru meira með boltann í fyrri hálfleik, sóttu meira og fengu nokkur ágætis tækifæri sem þeim tókst ekki að nýta. Sigurjón Logi Bergþórsson skoraði síðan mark fyrir Kára sem var dæmt…Lesa meira

true

Hátt í tvö hundruð störf á Akranesi sett í óvissu

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, vekur í færslu á FB síðu sinni máls á hremmingum sem tvö fyrirtæki á Akranesi eru í. Hátt í tvö hundruð störf eru þannig í óvissu. Í fyrsta lagi vísar Vilhjálmur í frétt Viðskiptablaðsins frá því fyrir helgi þar sem fjallað er um bága fjárhagsstöðu Skagans 3X. Í henni kemur…Lesa meira

true

Keppnin Víkingurinn fór fram um helgina

Víkingurinn 2024, keppni sterkustu manna landsins, fór fram hér á Vesturlandi um liðna helgi. Var hún haldin á fjórum stöðum; hófst í Hvalfjarðarsveit á föstudaginn en fór þaðan um Grundarfjörð, Ólafsvík og endaði í Stykkishólmi í gær. Keppt var í drumbalyftu að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd en kastað var yfir vegg við Stjórnsýsluhúsið í Melahverfi. Á…Lesa meira

true

Ótrúlegar lokamínútur hjá Ólsurum

KFG og Víkingur Ólafsvík áttust við í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Samsungvellinum í Garðabæ. Fyrir viðureignina var KFG með tvo sigra og sex töp í 10. sæti á meðan Víkingur var í 2. sæti með 18 stig í öðru sæti og eina liðið í deildinni sem enn ekki…Lesa meira

true

Alþingi sjálft virðist eiga sök á að allar stærri vegaframkvæmdir eru í biðstöðu

Frá því síðastliðið haust hafa engin stór útboð verið hjá Vegagerðinni og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir í vegagerð hefjist á þessu ári. Skýringin er sú að Alþingi samþykkti ekki fyrir þinglok samgönguáætlun. Skýring þess er sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því hafa vega- og brúarframkvæmdir þar…Lesa meira

true

Eldislax nú í öðru sæti í útflutningi á fiski

Það er gömul saga og ný að þorskur er sú fisktegund sem skilar mestum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið af öllum þeim tegundum sem Íslendingar veiða, ala, vinna og selja. Á Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins, kemur fram að þorskur beri í raun höfuð og herðar yfir allar aðrar fisktegundir í þeim efnum og þannig hefur það verið í…Lesa meira