
Á myndinni er Bjarni Þormar lengst til vinstri í annarri röð, G. Bjartey fyrir neðan hann í þriðju röð, Jóel Þór lengst til hægri í sömu röð og Unnur Björg önnur frá hægri í neðstu röð. Ljósm. hi.is
Yfir 30 nýstúdentar hljóta Menntaverðlaun Háskóla Íslands
Þrjátíu og einn nemandi úr framhaldsskólum víða um land tók við Menntaverðlaunum Háskóla Íslands við útskriftir úr skólunum í vor. Verðlaunin voru nú veitt í áttunda sinn. Markmiðið með Menntaverðlaunum HÍ er að verðlauna framhaldsskólanema sem hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs auk þess að hafa sýnt eftirtektarverða frammistöðu á sviði lista eða íþrótta, átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans eða sýnt þrautseigju við erfiðar aðstæður.