
Hátt í tvö hundruð störf á Akranesi sett í óvissu
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, vekur í færslu á FB síðu sinni máls á hremmingum sem tvö fyrirtæki á Akranesi eru í. Hátt í tvö hundruð störf eru þannig í óvissu. Í fyrsta lagi vísar Vilhjálmur í frétt Viðskiptablaðsins frá því fyrir helgi þar sem fjallað er um bága fjárhagsstöðu Skagans 3X. Í henni kemur fram að takist ekki að afla viðbótarfjármagns ríkir veruleg óvissa um rekstrarhæfi fyrirtækisins. „Til marks um slæma fjárhagsstöðu Skagans 3X var eigið fé félagsins neikvætt um 3,3 milljarða króna í lok síðasta árs. Rétt er að geta þess að tæplega 140 manns hafa starfað hjá Skaganum 3X að meðaltali,“ segir Vilhjálmur. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er nú unnið dag og nótt að því að leysa úr fjárhagsvanda Skagans 3X en fyrirtækið framleiðir tæki til matvælavinnslu. Sá iðnaður hefur ekki náð að rétta úr kútnum eftir hremmingar undanfarinna ára sem rekja má til Covid-19 og stríðsins í Úkraínu.