Fréttir

true

Sturluhátíðin verður haldin 13. júlí

Nú fer að styttast í árlegan viðburð. Sturlufélagið heldur Sturluhátíð laugardaginn 13. júlí nk. Hátíðin er kennd við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum. Hátíðin hefst við Staðarhól í Saurbæ með afhjúpun söguskilta sem Sturlufélagið hefur látið útbúa en þau gefa innsýn í sögu sagnaritarans, Staðarhóls og héraðsins. Að því loknu…Lesa meira

true

Undirbúningur Unglingalandsmóts gengur vel

Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót UMFÍ, sem haldið verður í Borgarnesi um verslunarmannahelgina, er nú í fullum gangi. Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB), segir í samtali við Skessuhorn að von væri á um eitt þúsund þátttakendum; „og svo fylgja þeim yfirleitt tveir til þrír fjölskyldumeðlimir,“ bætir hún við. Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem…Lesa meira

true

Kirkjubrautin að nýju máluð regnbogalitunum

Það var vaskur hópur fólks sem var mættur á laugardagsmorgun á Akratorg á Akranesi. Blíðskaparveðri hafði verið spáð og ákveðið að mála að nýju í liti fjölbreytileikans Kirkjubrautina frá torginu og upp að næstu gatnamótum. Nokkur fyrirtæki og félagasamtök lögðu verkefninu lið með því að kosta einn lit hvert og voru fulltrúar þeirra mættir til…Lesa meira

true

Miðla reynslu af hvítlauksræktun sinni

Hjónin Þórunn MJH Ólafsdóttir og Haraldur Guðjónsson hafa stundað tilraunaræktun á hvítlauk að Neðri-Brekku í Saurbæ í Dölum í nokkur ár, en stefna nú ótrauð á að margfalda afköstin. Nú um helgina miðla þau af reynslu sinni og halda námskeið á þremur stöðum á norðvesturhluta landsins; Víðihlíð í Skagafirði á morgun, en í dag í…Lesa meira

true

Frábær sigur Skagamanna gegn Val

Karlarnir í meistaraflokki ÍA í knattspyrnu gerðu sér lítið fyrir og unnu frábæran 3:2 sigur gegn Val á Elkemvellinum á Akranesi á föstudagskvöldið. Með sigrinum náðu þeir að halda í fjórða sætið í Bestu deildinni, en liðið hefur verið á góðu skriði í síðustu leikjum. Valsmenn byrjuðu leikinn betur með strekkingsvind í bakið og gerðu…Lesa meira

true

Réttur hvers og eins að leita uppruna síns

Viðtal við Brynju Valdimarsdóttur úr Skessuhorni árið 2021 Skagakonan Brynja Valdimarsdóttir vakti fyrst athygli þegar hún tók þátt í Idol Stjörnuleit árið 2004. Brynja fæddist á Srí Lanka en það var í desember árið 1985 sem móðir hennar hér á landi sótti hana sex vikna gamla og veikburða og bjó henni öruggara og betra líf.…Lesa meira

true

Ég er háður því að vera hér

Viðtal við Magnús Tómasson myndlistarmann á Ökrum sem birtist í Skessuhorni árið 2022 Magnús Tómasson er höfundur þekktra listaverka eins og Þotuhreiðursins við Leifsstöð og Minnismerkisins um óþekkta embættismanninn við Tjörnina. Hann er borinn og barnfæddur í Reykjavík en hefur búið á Ökrum á Mýrum í áratugi og vill hvergi fara. Blaðamaður Skessuhorns ók í…Lesa meira

true

Hjólhýsi og bíll brunnu

Á þriðja tímanum aðfararnótt laugardags var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út. Eldur var þá í nýlegu hjólhýsi og bíl á tjaldsvæðinu á Húsafelli. Allt brann sem brunnið gat í bæði bíl og hýsinu. Tvö önnur hýsi voru nærri því sem brann og tókst að draga þau frá. Bæði skemmdust, annað mikið. Engan sakaði í brunanum, fjölskylda…Lesa meira

true

Kíkt í fuglamatinn

Margir hafa það fyrir venju að fóðra smáfuglana nærri húsum sínum. Sumir þeirra eru að auki áhugaljósmyndarar og nýta matartíma fuglanna til að ná af þeim góðum myndum. Fuglarnir venjast svo mannfólkinu líkt og þeir skynji að um vini sé að ræða. En það eru fleiri sem njóta góðs af veitingunum, meðal annars þessi bústna…Lesa meira

true

Nýta þurrkinn til hins ítrasta

Bændur víða um vestanvert landið eru nú á fullu í heyskap. Margir slógu í fyrrakvöld og gærmorgun þegar veðurspár reyndust samstíga um þriggja daga þurrk framundan. Meðfylgjandi mynd var tekin síðdegist í gær á vel sprottinni sléttu við Hvítanes í Hvalfjarðarsveit. Þarna er Marinó Tryggvason bóndi að snúa en Jón Þór sonur hans var á…Lesa meira