
Bíllinn alelda og hjólhýsið brunnið. Ljósm. aðsend
Hjólhýsi og bíll brunnu
Á þriðja tímanum aðfararnótt laugardags var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út. Eldur var þá í nýlegu hjólhýsi og bíl á tjaldsvæðinu á Húsafelli. Allt brann sem brunnið gat í bæði bíl og hýsinu. Tvö önnur hýsi voru nærri því sem brann og tókst að draga þau frá. Bæði skemmdust, annað mikið. Engan sakaði í brunanum, fjölskylda sem í hjólhýsinu dvaldi komst út í tæka tíð. Fólki var engu að síður mikið brugðið.