Fréttir

true

Brákarhátíð og Hinsegin Vesturland í gangi

Í gær hófst dagskrá Brákarhátíðar og Hinsegin Vesturlands í Borgarnesi með sundlaugardiskói Arionbanka. Auk þess voru tónleikar með Ásgeiri Trausta í Landnámssetri Íslands. Í Grímshúsi var sýning og samtal um þættina Svona fólk. Í dag heldur hátíðin áfram og verður fjölmörg afþreying í boði. Opna Borgarnes mótið í Frisbígolfi verður haldið; 3 vs 3 körfuboltamót,…Lesa meira

true

Góður árangur púttara UMSB á Landsmóti UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ fór fram á Vogum á Vatnsleysuströnd í byrjun júní. Pútthópur UMSB sendi 21 keppanda en þátttakendur í heild í púttinu voru rúmlega 60 talsins. Keppt var í nágrenni golfskálans að Kálfatjörn 9. júní. Borgfirðingar náðu ágætis árangri. A liðið vann liðakeppnina með jafn mörg högg og Suðurnesjamenn en var með betri útkomu…Lesa meira

true

Skemmdarverk á himnastiga

Það var ekki skemmtileg aðkoman í morgun hjá starfsfólki Vinnuskólans í Borgarnesi þegar þau ætluðu að ljúka við að mála himnastigann sem nær frá Borgarbraut og upp að grunnskólanum. Óprúttnir aðilar höfðu hellt úr nokkrum málningardollum í skjóli nætur á stigann og yfir hann þannig að það stórsá á honum. Málningarföturnar höfðu verið geymdar yfir…Lesa meira

true

Jóhanna Ösp kosin oddviti

Á sveitarstjórnarfundi sem haldinn var 19. júní síðastliðinn var, samkvæmt samþykktum um stjórn Reykhólahrepps, kosnir oddviti og varaoddviti til eins árs. Jóhanna Ösp Einarsdóttir var kosin oddviti í stað Árnýjar Huldar Haraldsdóttur og Hrefna Jónsdóttir var kosin varaoddviti í stað Jóhönnu Aspar. Meðfylgjandi ljósmynd er úr safni Skessuhorns.Lesa meira

true

Púttkeppni eldri borgara

Fyrsta púttkeppni eldri borgara í Borgarbyggð og Akranesi fór fram að Hamri í Borgarnesi í gær í blíðskaparveðri. Vellirnir voru í besta ásigkomulagi og margir að leika vel. Til leiks mættu alls 55 púttarar. Púttlið FEBBN og FEB leiðir eftir daginn með 452 högg en FEBAN er með 476 högg. Næsta keppni fer fram á…Lesa meira

true

Vel gengur í íþróttahúsinu á Vesturgötu

Framkvæmdir eru í fullum gangi þessa dagana í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Í Framkvæmdafréttum sem birtast af og til á vefsíðu Akraneskaupstaðar eru íbúar upplýstir um framkvæmdir bæjarfélagsins og er áhugavert fyrir íbúa að kynnast ferlinu sem og sjá framvindu mála. Fram kemur í Framkvæmdafréttum að haustið 2023 kom í ljós eftir ástandsskoðun á…Lesa meira

true

Allt fer í bál og brand á Eiríksstöðum um aðra helgi

Helgina 5.-7. júlí verður á Eiríksstöðum í Haukadal haldin tilrauna-fornleifafræðihátíðin Eldhátíð, „þar sem allt fer í bál og brand,“ eins og skipuleggjendur orða það; „eða, kannski ekki alveg allt. Tilgátubærinn Eiríksstaðir fær að standa. En vísindavíkingarnir frá víkingafélaginu Hurstwic í Bandaríkjunum ætla að koma til Íslands og byggja eftirlíkingu af inngangi Eiríksstaða og rannsaka hvernig…Lesa meira

true

Vildu skerpa á tímaáætlun

Síðasta miðvikudag boðaði menningar- og safnanefnd til fundar Jón Allansson forstöðumann Byggðasafnsins í Görðum og óskaði eftir stöðu á fyrirhugaðri útgerðasýningu í nýju bátahúsi byggðasafnsins. Jón veitti nefndinni upplýsingar um stöðu mála og þakkaði nefndin Jóni fyrir þær varðandi sýninguna í safninu. Fram kemur í fundargerð að það séu vonbrigði að opnun sýningarinnar hafi dregist…Lesa meira

true

Öld frá fæðingu Sveinbjarnar Beinteinssonar

Fimmtudaginn 4. júlí nk. verða hundrað ár liðin frá fæðingu Sveinbjarnar Beinteinssonar. Af því tilefni munu Kvæðamannafélagið Snorri í Reykholti og Kvæðamannafélagið Iðunn í Reykjavík í sameiningu standa fyrir viðburði í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Kynnir verður Þóra Elfa Björnsson og mun hún einnig lesa ljóð Sveinbjarnar. Það mun Gunnar J. Straumland og gera.…Lesa meira