Garðar sýndi gamla takta með pensilinn og valdi að sjálfsögðu þann gula.

Skemmdarverk á himnastiga

Það var ekki skemmtileg aðkoman í morgun hjá starfsfólki Vinnuskólans í Borgarnesi þegar þau ætluðu að ljúka við að mála himnastigann sem nær frá Borgarbraut og upp að grunnskólanum. Óprúttnir aðilar höfðu hellt úr nokkrum málningardollum í skjóli nætur á stigann og yfir hann þannig að það stórsá á honum. Málningarföturnar höfðu verið geymdar yfir nóttina undir ruslapoka við stigann og gert ráð fyrir að þær yrðu látnar í friði en svo var nú aldeilis ekki.

Skemmdarverk á himnastiga - Skessuhorn