
Kuldaleg heiðlóa í Mývatnssveit í umræddu norðan hreti. Ljósm. ruv.is/ Björgvin Kolbeinsson
Lýsir yfir samstöðu með bændum vegna afleiðinga hrets í byrjun mánaðar
Á fundi atvinnumálanefndar Dalabyggðar 24. júní sl. voru rædd málefni bænda vegna kuldatíðar í byrjun júní. Dagana 3.-8. júní gekk slæmt veður með mikilli úrkomu og kulda yfir landið. Hret þetta kom það seint að búið var að sleppa lambfé að mestu út og þar sem veður og aðstæður voru verstar þurfti að hýsa fé og annan búfénað. Hretið hafði m.a. neikvæð áhrif á tún og aðra jarðrækt, búfénað og fuglalíf.