
Séð upp í áhorfendapallana. Ljósm. akranes.is
Vel gengur í íþróttahúsinu á Vesturgötu
Framkvæmdir eru í fullum gangi þessa dagana í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Í Framkvæmdafréttum sem birtast af og til á vefsíðu Akraneskaupstaðar eru íbúar upplýstir um framkvæmdir bæjarfélagsins og er áhugavert fyrir íbúa að kynnast ferlinu sem og sjá framvindu mála. Fram kemur í Framkvæmdafréttum að haustið 2023 kom í ljós eftir ástandsskoðun á íþróttasalnum á Vesturgötu að loftgæði voru langt frá því að vera ásættanleg fyrir notkun í húsinu. Tekið var til þess ráðs að loka salnum, lagfæra og betrumbæta.