Öld frá fæðingu Sveinbjarnar Beinteinssonar

Fimmtudaginn 4. júlí nk. verða hundrað ár liðin frá fæðingu Sveinbjarnar Beinteinssonar. Af því tilefni munu Kvæðamannafélagið Snorri í Reykholti og Kvæðamannafélagið Iðunn í Reykjavík í sameiningu standa fyrir viðburði í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.

Kynnir verður Þóra Elfa Björnsson og mun hún einnig lesa ljóð Sveinbjarnar. Það mun Gunnar J. Straumland og gera. Þórdís Sigurbjörnsdóttir les grein Dagbjarts Dagbjartssonar um skáldið og kvæðafólk úr Kvæðamannafélaginu Iðunni; Bára Grímsdóttir, Gústaf Daníelsson og Rósa Jóhannesdóttir munu kveða nokkrar rímur Sveinbjarnar.

Öllum er velkomið að sækja viðburðinn sem hefst kl. 18:00, fimmtudaginn 4. júlí 2024 og mun dagskráin taka um klukkustund.

-fréttatilkynning

Öld frá fæðingu Sveinbjarnar Beinteinssonar - Skessuhorn