
Eiríksstaðir í Haukadal. Ljósm. aðsend
Allt fer í bál og brand á Eiríksstöðum um aðra helgi
Helgina 5.-7. júlí verður á Eiríksstöðum í Haukadal haldin tilrauna-fornleifafræðihátíðin Eldhátíð, „þar sem allt fer í bál og brand,“ eins og skipuleggjendur orða það; „eða, kannski ekki alveg allt. Tilgátubærinn Eiríksstaðir fær að standa. En vísindavíkingarnir frá víkingafélaginu Hurstwic í Bandaríkjunum ætla að koma til Íslands og byggja eftirlíkingu af inngangi Eiríksstaða og rannsaka hvernig torfbæir brenna. Þessi brenna mun keppa við brennuna á Fjósakletti í Herjólfsdal seinna í sumar, það er auðvelt að lofa því.“