Hjónin í Neðri-Brekku með hvítlaukssalt sem þau hafa framleitt og selt. Ljósm. úr safni

Miðla reynslu af hvítlauksræktun sinni

Hjónin Þórunn MJH Ólafsdóttir og Haraldur Guðjónsson hafa stundað tilraunaræktun á hvítlauk að Neðri-Brekku í Saurbæ í Dölum í nokkur ár, en stefna nú ótrauð á að margfalda afköstin. Nú um helgina miðla þau af reynslu sinni og halda námskeið á þremur stöðum á norðvesturhluta landsins; Víðihlíð í Skagafirði á morgun, en í dag í Árbliki í Dölum og á Ströndum í kvöld. Þórunn og Haraldur eru frumkvöðlar í svokallaðri „No dig/No till“ aðferð í ræktun hérlendis og hafa kynnt sér aðferðafræðina bæði í orði og á borði. Aðferðin er einnig kennd við „lagsagna“ en þar sér náttúran sjálf um ræktunarvinnuna í hverju lagi fyrir sig.