Sturluhátíðin verður haldin 13. júlí

Nú fer að styttast í árlegan viðburð. Sturlufélagið heldur Sturluhátíð laugardaginn 13. júlí nk. Hátíðin er kennd við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum. Hátíðin hefst við Staðarhól í Saurbæ með afhjúpun söguskilta sem Sturlufélagið hefur látið útbúa en þau gefa innsýn í sögu sagnaritarans, Staðarhóls og héraðsins. Að því loknu verður farið í sögugöngu með leiðsögn um Staðarhól. Að lokinni dagskrá á Staðarhóli verður haldið að Laugum í Sælingsdal, þar sem dagskráin heldur áfram og verða bornar fram kaffiveitingar, í boði Sturlufélagsins, að gildum og góðum íslenskum sið.

Sturluhátíðin verður haldin 13. júlí - Skessuhorn