
Vaskir málarar. Ljósmyndir: mm
Kirkjubrautin að nýju máluð regnbogalitunum
Það var vaskur hópur fólks sem var mættur á laugardagsmorgun á Akratorg á Akranesi. Blíðskaparveðri hafði verið spáð og ákveðið að mála að nýju í liti fjölbreytileikans Kirkjubrautina frá torginu og upp að næstu gatnamótum. Nokkur fyrirtæki og félagasamtök lögðu verkefninu lið með því að kosta einn lit hvert og voru fulltrúar þeirra mættir til að mála.