Íþróttir
Liðsmenn Skallagríms fyrir leik gegn Árborg. Ljósm. eag

Föst leikatriði höfuðverkur Skallagríms gegn Árborg

Skallagrímur tók á móti Árborg í 4. deild karla í knattspyrnu síðastliðinn föstudag. Skallagrímur náði frábærum úrslitum í umferðinni á undan er liðið gjörsigraði RB, 1-10. Árborg hafði náð í jafntefli gegn Tindastól í umferðinni á undan og var með 12 stig í fimmta sæti deildarinnar á meðan Skallagrímur var í því áttunda með 6 stig. Skallagrímur spilaði í nýjum og glæsilegum varatreyjum og var áhorfendastúkan nokkuð þétt setin enda frábært veður í Borgarnesi og Brákarhátíð í gangi.

Föst leikatriði höfuðverkur Skallagríms gegn Árborg - Skessuhorn