Fréttir

true

Soffía Björg og Pétur Ben að hefja tónleikaferð

Tónlistarfólkið Soffía Björg Óðinsdóttir og Pétur Ben eru nú að hefja ferð um landið og munu flytja tónlist á fjölmörgum stöðum umhverfis landið. Fyrstu tónleikarnir verða í Frystiklefanum í Rifi annað kvöld, miðvikudaginn 3. júlí, á Fosshótel Stykkishólmi fimmtudaginn 4. júlí og á Dalíu í Búðardal koma þau fram föstudaginn 5. júlí og verða þeir…Lesa meira

true

Laxinn að gefa sig í opnun Dalaánna

„Veiðin byrjaði bara vel hjá okkur í Miðá í Dölum og við fengum þrjá laxa á opnunardaginn,“ sagði Heiðar Logi Elíasson sem var var að opna Miðá og hann bætti við: „Við fengum alla laxana í Tunguá sem rennur í Miðána. „Við fengum einungis laxa en sáum lítið af bleikjunni. Þetta byrjar bara vel hérna,…Lesa meira

true

Upplýsingamiðstöð opnuð á ný í Grundarfirði

Fimmtudaginn 27. júní var tekið úr lás í nýju húsnæði Snæfellsnes Excursions í Grundarfirði. Fyrrum húsnæði fyrirtækisins brann til kaldra kola í mars 2022 og nú er verið að opna nýja húsnæðið að hluta til. „Verkstæðishlutinn er ekki tilbúinn en við erum nýbúin að fá leyfi fyrir versluninni og upplýsingamiðstöðinni,“ segir Lísa Ásgeirsdóttir eigandi fyrirtækisins…Lesa meira

true

SA hafnaði í sjötta sæti á Aldursflokkameistaramóti

Helgina 28.-30. júní fór fram Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi og var það að þessu sinni haldið í Reykjanesbæ. Keppendur voru 15 ára og yngri. Um 227 keppendur voru á mótinu, frá ellefu félögum um allt land. Til að öðlast keppnisrétt á mótinu þurfti sundfólkið að synda undir ákveðnum lágmarkatímum. Sundfélag Akraness mætti til leiks með…Lesa meira

true

Gjaldhlið í Samkomuhúsi Grundarfjarðar

Sett hefur verið upp gjaldhlið við ferðamannainngang í Samkomuhúsi Grundarfjarðar að Sólvöllum 3. Síðan 2019 hafa salernin í samkomuhúsinu verið nýtt sem almenningssalerni og ferðamönnum hefur því í sex ár staðið til boða að nýta þau sem slík, án þess að gjald hafi verið tekið fyrir. Þjónustan hefur verið í boði allan ársins hring að…Lesa meira

true

Lýsir yfir vonbrigðum vegna tafa á samgönguframkvæmdum

Stjórn Vestfjarðastofu hefur sent frá sér ályktun þar sem hún lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur er komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Í ályktuninni kemur fram að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem eiga nú að vera á lokastigi framkvæmda í…Lesa meira

true

Fjörumór á Fellsströnd á sunnudaginn

Sunnudaginn 7. júlí klukkan 14 verða leyndardómar fjörunnar rannsakaðir við Staðarfell í Dölum undir leiðsögn Jamie Lee, stofnanda Fine Foods Islandica, og Guðrúnar Hallgrímsdóttur matvælaverkfræðings. Komið verður saman við félagsheimilið á Fellsströnd, við hliðina á Staðarfelli. „Munum að vera viðeigandi búin fyrir fjöruna og gott er að mæta með ílát til að safna í og…Lesa meira

true

Þrjú kvenfélög gefa til fæðingadeildar HVE

Síðdegis í dag fékk Kvensjúkdómadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi góða heimsókn. Þangað mættu fulltrúar frá þremur kvenfélögum í héraðinu og færðu deildinni peningagjöf sem nota skal til endurbóta á fæðingadeildinni. Kvenfélögin sem hlut eiga að máli eru; Kvenfélag Borgarness, Kvenfélag Stafholtstungna og Kvenfélagið Liljan í Hvalfjarðarsveit. Það var Linda Sverrisdóttir formaður SBK og félagskona í…Lesa meira

true

Framkvæmd við Uxahryggjaveg háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Uxahryggjavegur milli Brautartungu í Lundarreykjadals og Kaldadalsvegar skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021. Ákvörðun Skipulagsstofnunar ásamt gögnum málsins eru aðgengileg inn a vef stofnunarinnar.   Vegagerðin kynnti í febrúar á þessu ári ný- og endurbyggingu Uxahryggjavegar (52) og Kaldadalsvegar (550) á samtals 23 km löngum kafla…Lesa meira

true

Meðferðarrýmum í Krýsuvík verður fjölgað

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt fulltrúa Krýsuvíkursamtakanna hafa undirritað samkomulag um fjölgun rýma og aukinn stuðning við meðferðarheimilið Krýsuvík. Samkomulagið kveður á um aukið aðgengi að þjónustunni og fjölgun meðferðarplássa um þriðjung, ásamt því að efla faglegt meðferðarstarf í Krýsuvík. Árið 2023 voru að jafnaði 22 einstaklingar í meðferð á meðferðarheimilinu í Krýsuvík en með…Lesa meira