
Frá undirritun samkomulags heilbrigðisráðuneytisins við Krýsuvíkursamtökin. Ljósm. Stjórnarráðið
Meðferðarrýmum í Krýsuvík verður fjölgað
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt fulltrúa Krýsuvíkursamtakanna hafa undirritað samkomulag um fjölgun rýma og aukinn stuðning við meðferðarheimilið Krýsuvík. Samkomulagið kveður á um aukið aðgengi að þjónustunni og fjölgun meðferðarplássa um þriðjung, ásamt því að efla faglegt meðferðarstarf í Krýsuvík. Árið 2023 voru að jafnaði 22 einstaklingar í meðferð á meðferðarheimilinu í Krýsuvík en með auknum stuðningi fjölgar rýmunum sem verða 29 talsins. Samtökin hafa staðið fyrir framkvæmdum og endurbótum á húsnæði Krýsuvíkur í þeim tilgangi að fjölga rýmum og auka aðgengi að þjónustunni.