Nýja gjaldhliðið. Ljósm. grundarfjordur.is

Gjaldhlið í Samkomuhúsi Grundarfjarðar

Sett hefur verið upp gjaldhlið við ferðamannainngang í Samkomuhúsi Grundarfjarðar að Sólvöllum 3. Síðan 2019 hafa salernin í samkomuhúsinu verið nýtt sem almenningssalerni og ferðamönnum hefur því í sex ár staðið til boða að nýta þau sem slík, án þess að gjald hafi verið tekið fyrir. Þjónustan hefur verið í boði allan ársins hring að mestu, nema einkasamkvæmi séu í húsinu. Ferðamenn verða framvegis rukkaðir um tvö hundruð krónur fyrir að nota salernin. Hægt er að greiða bæði með korti og mynt.

Gjaldhlið í Samkomuhúsi Grundarfjarðar - Skessuhorn