Soffía Björg og Pétur Ben að hefja tónleikaferð

Tónlistarfólkið Soffía Björg Óðinsdóttir og Pétur Ben eru nú að hefja ferð um landið og munu flytja tónlist á fjölmörgum stöðum umhverfis landið. Fyrstu tónleikarnir verða í Frystiklefanum í Rifi annað kvöld, miðvikudaginn 3. júlí, á Fosshótel Stykkishólmi fimmtudaginn 4. júlí og á Dalíu í Búðardal koma þau fram föstudaginn 5. júlí og verða þeir tónleikar liður í bæjarhátíðinni Heim í Búðardal. Með þeim í för verða Fríða Dís (Klassart) og Magnús Trygvason Eliassen (Moses Hightower).