Fulltrúar þriggja kvenfélaga sem gáfu deildinni gjöf auk þeirra Hrafnhildar og Hrundar sem standa lengst til hægri. Ljósm. mm

Þrjú kvenfélög gefa til fæðingadeildar HVE

Síðdegis í dag fékk Kvensjúkdómadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi góða heimsókn. Þangað mættu fulltrúar frá þremur kvenfélögum í héraðinu og færðu deildinni peningagjöf sem nota skal til endurbóta á fæðingadeildinni. Kvenfélögin sem hlut eiga að máli eru; Kvenfélag Borgarness, Kvenfélag Stafholtstungna og Kvenfélagið Liljan í Hvalfjarðarsveit. Það var Linda Sverrisdóttir formaður SBK og félagskona í Kvenfélagi Borgarness sem afhenti Hrafnhildi Ólafsdóttur deildarstjóra gjöfina. Eftir það var gestum boðið í kaffi og spjall.

Þrjú kvenfélög gefa til fæðingadeildar HVE - Skessuhorn