Heiðar Logi Elíasson með flottan lax úr Tunguá á fyrsta veiðideginum, en Tunguá rennur í Miðá.

Laxinn að gefa sig í opnun Dalaánna

„Veiðin byrjaði bara vel hjá okkur í Miðá í Dölum og við fengum þrjá laxa á opnunardaginn,“ sagði Heiðar Logi Elíasson sem var var að opna Miðá og hann bætti við: „Við fengum alla laxana í Tunguá sem rennur í Miðána. „Við fengum einungis laxa en sáum lítið af bleikjunni. Þetta byrjar bara vel hérna, flott vatn og góðar aðstæður. Svo var ég í Stóru Laxá eina vakt með Hugo Bender og kærustunni og fengum fjóra laxa, það var mjög gaman. Það verður gaman að sjá hvernig næstu vaktir gefa hérna í Miðánni,“ sagði Heiðar Logi.

Laxinn að gefa sig í opnun Dalaánna - Skessuhorn