
Húsið er hið glæsilegasta þar sem það stendur á Sólvöllum 5 í Grundarfirði. Ljósm. tfk
Upplýsingamiðstöð opnuð á ný í Grundarfirði
Fimmtudaginn 27. júní var tekið úr lás í nýju húsnæði Snæfellsnes Excursions í Grundarfirði. Fyrrum húsnæði fyrirtækisins brann til kaldra kola í mars 2022 og nú er verið að opna nýja húsnæðið að hluta til. „Verkstæðishlutinn er ekki tilbúinn en við erum nýbúin að fá leyfi fyrir versluninni og upplýsingamiðstöðinni,“ segir Lísa Ásgeirsdóttir eigandi fyrirtækisins í samtali við Skessuhorn. Nýlega var samið við Grundarfjarðarbæ um rekstur upplýsingamiðstöðvar sem áður var til húsa í Sögumiðstöðinni. Einnig er búið að setja upp litla verslun þar sem seldir verða minjagripir og handverk úr heimabyggð. Opið verður alla daga frá klukkan níu til fimm og geta ferðamenn því nálgast upplýsingar og minjagripi í þessu nýja og glæsilega húsnæði.