Eldislax nú í öðru sæti í útflutningi á fiski

Það er gömul saga og ný að þorskur er sú fisktegund sem skilar mestum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið af öllum þeim tegundum sem Íslendingar veiða, ala, vinna og selja. Á Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins, kemur fram að þorskur beri í raun höfuð og herðar yfir allar aðrar fisktegundir í þeim efnum og þannig hefur það verið í áratugi. Nokkuð mismunandi er á milli ára hvaða tegundir hafa komið næstar á eftir þorskinum, en heilt á litið hefur loðnan skilað næstmestum útflutningstekjum af öllum fisktegundum á þessari öld. Hið sama gildir um undanfarinn áratug. Sé hins vegar horft til undanfarinna fimm ára, þá hefur útflutningur á eldislaxi skilað næstmestum útflutningstekjum af öllum fisktegundum sem fluttar eru frá landinu.

Eldislax nú í öðru sæti í útflutningi á fiski - Skessuhorn