Verkin sem bíða meðan vanfjármagnað Hornafjarðarfljót sogar til sín fjárveitingarnar. Grafík/ Stöð2, Hjalti Freyr Ragnarsson.

Alþingi sjálft virðist eiga sök á að allar stærri vegaframkvæmdir eru í biðstöðu

Frá því síðastliðið haust hafa engin stór útboð verið hjá Vegagerðinni og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir í vegagerð hefjist á þessu ári. Skýringin er sú að Alþingi samþykkti ekki fyrir þinglok samgönguáætlun. Skýring þess er sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því hafa vega- og brúarframkvæmdir þar farið margfalt yfir þá fjárheimild sem Alþingi hafði ráðstafað til verksins. Þannig má segja allar stærri vegaframkvæmdir séu nú valdaðar af þeirri staðreynd að Alþingi gat ekki komið sér saman um hvernig taka ætti á málinu austur á Hornafirði. Á útboðsþingi sem haldið var í janúar á þessu ári kom fram að þá stefndi í að met yrði slegið í útboðum verklegra framkvæmda í ár. Það met breytist mögulega í öndverðu sína.

Alþingi sjálft virðist eiga sök á að allar stærri vegaframkvæmdir eru í biðstöðu - Skessuhorn