Fréttir

true

Opinber þjónusta vegur þyngst á Vesturlandi

Líkt og í öðrum landshlutum vegur stjórnsýsla, fræðsla, heilbrigðis- og félagsþjónusta þyngst í hlutdeild atvinnugreina í atvinnutekjum ársins 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Byggðastofnunar. Hlutfallið var 32%. Þar á eftir kemur framleiðsla án fiskvinnslu með 18%, fiskveiðar og -vinnsla skila 12%, byggingastarfsemi 8%, verslun og viðgerðir skila 7%, gisti- og veitingarekstur er með…Lesa meira

true

Hefja átak í bólusetningu drengja fæddir 2008-2010

Sóttvarnalæknir er að hefja átak um bólusetningu drengja hér á landi sem fæddir eru árin 2008-2010 og verður bólusetning þessara árganga gjaldfrjáls í vetur. Í tilkynningu kemur fram að sýnt hafi verið fram á að HPV bólusetning er mikilvæg leið til að fækka krabbameinstilfellum. „Bólusetning gegn HPV veirunni hófst hér á landi árið 2011, fyrst…Lesa meira

true

Breytingar í yfirstjórn Kapp

Freyr Friðriksson stofnandi og eigandi Kapp ehf hefur ákveðið að hætta sem forstjóri félagsins og verður stjórnarformaður þess. Ólafur Karl Sigurðarson, sem gegnt hefur stöðu aðstoðarforstjóra KAPP, síðastliðið rúmt ár, tekur við sem forstjóri. Kapp er íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi, kjúklingaframleiðslu, smávöruverslanir og…Lesa meira

true

Fá stærri fisk á línuveiðum með stokkum

Línubáturinn Kristinn SH er eini báturinn sem rær frá Snæfellsbæ með svokallaða stokka. Þá er línan stokkuð upp í landi, en lögð úr stokkum úti á sjó. Í hverjum stokk eru 400 krókar. Kristinn SH rær með 60 stokka í róðri. Þegar beitt var á hefðbundinn máta voru níu menn að vinna við beitningu, en…Lesa meira

true

Misjafnt gengi bjargfugla á Snæfellsnesi

Bjargfugli einstakra tegunda reiddi misjafnlega af á Snæfellsnesi á liðnu ári. Þetta kemur fram í framvinduskýrslu Náttúrustofu Norðausturlands um vöktun bjargfugla árið 2025 en hún vinnur að vöktuninni á öllu landinu í umboði Umhverfisstofnunar en með aðstoð annarra náttúrustofa. Vöktun fer að stórum hluta fram með vöktunarmyndavélum. Hvað ritu varðar hefur hreiðrum hennar fjölgað í…Lesa meira

true

Einar Margeir er Íþróttamanneskja Akraness 2025

Í kvöld voru tilkynnt úrslit í kjöri á Íþróttamanneskju Akraness árið 2025 og var viðburðurinn haldinn í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll og sýndur auk þess beint á ÍATV. Það var sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson sem hlaut flest stig. Þetta er þriðja árið í röð sem hann hlýtur þessi verðlaun. Hlaut hann að launum Helga Dan bikarinn…Lesa meira

true

Útköllum slökkviliða á Vesturlandi fækkaði milli ára

Útköll slökkviliða á Vesturlandi voru 174 á nýliðnu ári. Er það nokkur fækkun frá árinu á undan þegar þau voru 185. Eldútköllum fækkaði úr 105 árið 2024 í 84 árið 2025. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Nú eru starfandi sex slökkvilið á Vesturlandi sem reka 12 slökkviliðsstöðvar. Auk Vesturlands er brunavörnum…Lesa meira

true

Tóku nýbyggingu við skólann í notkun í dag – myndir

Framkvæmdir við nýbyggingu Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum eru nú á lokametrunum. Í dag var hluti nýbyggingarinnar tekin í notkun þegar nemendur miðstigs skólans fluttu inn í nýja skólastofu. Síðastliðið haust fóru nemendur yngsta stigs í bygginguna og voru því frumbyggjar í henni. Að sögn Helgu Jensínu Svavarsdóttur skólastjóra er nú beðið eftir búnaði í eldhús…Lesa meira

true

Mannamót markaðsstofanna haldið í næstu viku

Mannamót markaðsstofa landshlutanna verður haldið í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 15. janúar frá klukkan 12:00 til 17:00. Mannamót eru fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóts er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu með áherslu á vetrarferðaþjónustu.…Lesa meira