
Í apríl á síðasta ári kom upp eldur í gömlu íbúðarhúsi í Eskiholti í Borgarhreppi. Ljósm. mm
Útköllum slökkviliða á Vesturlandi fækkaði milli ára
Útköll slökkviliða á Vesturlandi voru 174 á nýliðnu ári. Er það nokkur fækkun frá árinu á undan þegar þau voru 185. Eldútköllum fækkaði úr 105 árið 2024 í 84 árið 2025. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Nú eru starfandi sex slökkvilið á Vesturlandi sem reka 12 slökkviliðsstöðvar. Auk Vesturlands er brunavörnum á Reykhólum og Ströndum að hluta sinnt úr Dölum. Slökkviliðsmenn eru 194 og starfssvæði þeirra eru rúmir 13 þúsund ferkílómetrar að stærð.